Laserskeri
Laserskerinn er notaður til þess að brennimerkja í efni (e.raster eða engrave) eða skera í gegnum það (e.vector).
Í Fab Lab smiðjunum er laserskeri oft notaður til þess að gera frumgerðir af stærri hlutum sem síðar á að skera út í fræsivél eða slíkt. Oft er byrjað að gera frumgerðir í bylgjupappa og síðan er skorið í önnur efni.
Epilog Mini Helix 24 er CO2 laserskeri og er í flestum Fab Lab smiðjum landsins. miðast leiðbeiningar hér við hann.
Stærð flatar: 300 * 600 mm
Þykkt efnis: Yfirleitt 3 mm plexigler, ræður við 4 mm krossvið.
Algengsustu efni sem notuð eru í laserskeranum eru, bylgjupappi, pappi, plexigler, gler, delrin og krossviður.
Hugbúnaður
- Inkscape er algengasti hönnunar hugbúnaðurinn til notkunar með laserskerunum okkar.
- FreeCad er frítt parametrískt cad hönnunarforrit sem nota má fyrir laserskerana.
- Einnig má notast við Slicer for Fusion360 til þess að umbreyta, þrívíddarskrám í tvívíðar til að skera út.
Skráarsnið
- Algengasta skráarsnið er .pdf og vektor skrár.
- Útskurður 0,02 mm rauðar vektor útlínur.
- Einnig má notast við .svg, .dxf
Epilog Mini 24 - Laserskeri
Vinnuflötur: 600 x 300 mm
Aðgengilegur á öllum stöðum
Varúð:
- MDF inniheldur ýmis óæskileg efni fyrir heilsuna og því forðumst við að nota það.
- Aldrei fara frá laserskeranum þegar hann er í notkun. Fylgist með skurðinum og gætið þess að ekki kvikni í hlutnum sem er verið að laserskera.
- Ekki nota PVC plast eða nylon því þá koma eiturgufur sem skaða fólk og laserskera.
- Ekki nota hluti sem spegla leysigeislanum til baka (s.s. speglar eða málmur)
- Þegar laserskerinn hefur lokið sínu verki, skal bíða í a.m.k. 30 sekúndur meðan loft frásogast frá vélinni.
Verkefni 1: Lyklakippuskraut - Vector og raster
Hannið einfalt lyklakippuskraut, lærum munin á vector og raster.
Verkefni 2: Fígúra sem stendur
Hannið fígúru með “fót”. Lærum grunnhugtök um efnisþykkt og smellismiði.
Verkefni 3: Geymslubox undir penna
Notið Tabbed Box maker til að búa til pennabox. Lærum um press-fit smellismiði.
Verkefni 4: Hringlaga dýrabox
Notum Elliptical box maker til að búa til box sem eru eins og dýraandlit í laginu. Lærum um lifandi lamir og smellismiði.
Verkefni 5: Flóknari fígúrur með slicer
Lærum á slicer for fusion og notum það til að búa til fígúrur í mörgum bitum sem smella saman með smellismiði.
Verkefni 6: Skálar - form sem endurtaka sig
Lærum að hanna nytjahluti fyrir heimilið, verðum nytjasöm með efniviðinn.
Verkefni 7: Tannhjól og hreyfanlegir hlutir
Lærum að hanna tannhjól sem láta hluti hreyfa sig.
Verkefni 8: Bangsar og dúkkur
Lærum að nota laserskerann á textíl til þess að skera búta sem við saumum síðan saman í saumavél. (varúð ekki nota nylon
Verkefni 9: Color mapping
Notum color mapping til að skera á nákvæmari hátt.
Verkefni 10: Tesselations - eilífðarpúsl
Notum clone tool og stærðfræði til að hanna form sem endurtaka sig.
Verkefni 11: Pepakura þrívíddarform
Notum Pepakura forritið með Inkscape til að búa til tvívíddarform úr pappa sem við setjum
saman til að mynda flott og flókin þrívíddarform.
Verkefni 12: Púsl og gestaþraut
Hönnum þrívíddarpúsl eða gestaþraut til skrauts og gamans.
Um Fab Lab
Fab Lab smiðjur eru frábær vettvangur til nýsköpunar og eru búnar tölvustýrðum tækjum og tólum til þess að gera frumgerðir og efla þekkingu á stafrænni framleiðslutækni.
Akureyri, Austurland, Hornafjörður, Húsavík
Ísafjörður, Reykjavík, Sauðárkrókur, Selfoss, Strandir, Vestmannaeyjar.
Fab Lab Network